Persónuverndarstefna
Gildistökudagur: 17. mars 2026
Síðast uppfært: 22. mars 2026
1. Ábyrgðarmaður persónuupplýsinga
- Spring & Republic ehf.
- Goðanes 6, 603 Akureyri, Ísland
- Skráningarnúmer 6702231590
- Netfang: support@springandrepublic.com
Spring & Republic ehf. er ábyrgðarmaður persónuupplýsinga og ber ábyrgð á vinnslu persónugagna þinna í samræmi við GDPR og íslensk persónuverndarlög. Lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsínga.
2. Hvaða persónugögnum er safnað?
Við söfnum persónugögnum þegar þú:
- Heimsækir vefsíðuna okkar
- Leggur inn pöntun
- Gerist áskrifandi að markaðssamskiptum
- Hefur samband við þjónustuver
- Tekur þátt í herferðum eða kynningum
Gögn sem safnað er geta m.a. falið í sér:
- Fullt nafn
- Netfang
- Símanúmer
- Reikningsfang og afhendingarstaður
- Pöntunarferill
- Greiðsluupplýsingar (unnar og geymdar af þriðja aðila greiðsluþjónustu — við geymum ekki kortanúmer þitt)
- IP-tala
- Upplýsingar um tæki og vafra
- Hegðun á vefsíðu (skoðaðar síður, smellt á vörur)
- Fæðingardagur (aðeins ef hann er frjálslega gefinn upp vegna samskipta um afmælisdag þinn)
Við söfnum ekki viðkvæmum persónugögnum.
3. Aldursviðmið — undir 16 ára
Þessi þjónusta er ekki miðuð að einstaklingum undir 16 ára aldri. Við söfnum ekki meðvitað persónugögnum frá einstaklingum undir 16 ára aldri. Ef þú telur að við höfum óvart safnað gögnum frá einstaklingi undir 16 ára aldri, vinsamlegast hafðu strax samband við okkur í gegn um support@springandrepublic.com og við munum eyða gögnunum án tafar.
Í samræmi við 8. gr. GDPR þarf samþykki foreldris eða forráðamanns til að vinna persónuupplýsingar barns yngra en 16 ára í þjónustu við upplýsingasamfélagið. Við treystum á að notendur staðfesti að þeir uppfylli þetta aldursskilyrði.
4. Lagalegur grundvöllur fyrir vinnslu
Við vinnum persónugögn á eftirfarandi lagalegum grundvelli:
A. Samningbundnar nauðsynjar
Til þess að:
- Afgreiða pantanir
- Afhenda vörur
- Stýra skilum
- Veita þjónustuver
B. Lagaleg Skylda
Til þess að:
- Uppfylla bókhalds- og skattalög á Íslandi
C. Lögmætir Hagsmunir
Til þess að:
- Koma í veg fyrir svik
- Bæta virkni vefsíðu
- Greina kauphegðun
- Bæta vöruframboð
Þar sem vinnsla þessa upplýsinga byggist á lögmætum hagsmunum tryggjum við að slíkir hagsmunir gangi ekki framar grundvallarréttindum og frelsi þínu.
D. Samþykki
Til þess að:
- Senda fréttabréf
- Senda SMS-markaðsskilaboð
- Senda afmæliskveðjur og kynningarherferðir
- Nota vefkökur í markaðs- og rakningarskyni
Þar sem þessi vinnsla byggist á samþykki getur þú afturkallað samþykki þitt hvenær sem er, án þess að það hafi áhrif á lögmæti vinnslu sem fór fram fyrir afturköllun.
5. Markaðssetning og prófílgerð
Ef þú gerist áskrifandi að markaðssamskiptum gætum við:
- Sent fréttabréf og kynningarpósta
- Sent SMS-herferðir og árstíðabundin tilboð
- Sent afmæliskveðju ef þú hefur gefið upp fæðingardaginn þinn
- Notað sjálfvirk markaðsverkfæri til að sérsníða samskipti á grundvelli pöntunarferils þíns eða vafrahegðunar. Slík prófílgerð hefur ekki lagalegar eða annars konar afleiðingar fyrir þig.
Þú getur sagt upp áskrift að markaðspósti hvenær sem er í gegnum tengilinn í tölvupóstum okkar, sagt upp áskrift að SMS-markaðsskilaboðum með því að svara á móti með skilaboðum sem segir STOP, eða með því að hafa samband við support@springandrepublic.com.
6. Vefkökur og rakningartækni
Við notum vefkökur og aðrar svipaðar aðferðir við rakningartækni. Þú getur stjórnað eða afturkallað samþykki á vefkökur hvenær sem er í gegnum vefköku-stillingar á vefsíðu okkar.
Tækni og þjónustuaðilar sem eru notaðir eru m.a.:
- Google Analytics (greining á umferð og hegðun á vefsíðu)
- Google Ads (mæling á frammistöðu auglýsinga)
- Meta Pixel — Facebook/Instagram (auglýsingar og endurmiðun — sjá kafla 7 vegna upplýsinga um sameiginlega ábyrgðarmenn)
- Shopify-greiningartæki (greining á vettvangi)
- Þriðja aðila Shopify-forrit (eftir því sem við á)
7. Sameiginleg ábyrgð — Meta Platforms
Með notkun Meta Pixel á vefsíðu okkar eru Spring & Republic ehf. og Meta Platforms Ireland Limited sameiginlegir ábyrgðarmenn vegna gagna sem safnað er á söfnunarpunkti, í samræmi við GDPR og dóma Evrópudómstólsins. Meta ber ábyrgð á gögnum sem unnin eru á eigin vettvangi þess. Samþykki á vefkökum er krafist áður en Meta Pixel virkjast. Persónuverndarstefna Meta: https://www.facebook.com/policy.php
Vegna réttinda tengdum gögnum á vettvangi Meta, skal hafa beint samband við Meta. Vegna annarra fyrirspurna, hafðu samband við support@springandrepublic.com.
8. Þriðju aðila þjónustuveitendur
Við deilum persónugögnum einungis með traustum þjónustuaðilum sem þurfa á þeim að halda til að veita þjónustu fyrir okkar hönd. Við gerum gagnameðferðarsamninga (DPAs) við alla viðeigandi þjónustuaðila eins og krafist er samkvæmt 28. gr. GDPR.
Þjónustuaðilar
- Shopify Inc. rafrænn viðskiptavettvangur og hýsing (vinnsluaðili)
- Greiðsluþjónusta (Teya), örugg greiðslumeðhöndlun (vinnsluaðili)
- Sendingarfyrirtæki — afhending pantana (vinnsluaðili)
- SMS-markaðsvettvangur — afhending SMS-herferða (vinnsluaðili)
- Meta Platforms Ireland Ltd. — Facebook/Instagram auglýsingar (sameiginlegur ábyrgðarmaður — sjá kafla 7)
- Google LLC — greining og auglýsingar í gegnum GA4 og Google Ads (vinnsluaðili/sameiginlegur ábyrgðarmaður fyrir auglýsingar)
- Bókhalds þjónustuaðilar — fjárhagsleg samræmi (vinnsluaðili)
9. Alþjóðlegir gagnaflutningar
Sumir þjónustuaðilar geta unnið persónugögn utan EES.
Þar sem þetta á við, reiðum við okkur á ákvarðanir um fullnægjandi vernd sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur gefið út og/eða staðlaða samningsskilmála (SCCs) eða aðrar samþykktar verndarráðstafanir í samræmi við GDPR.
10. Geymsla gagna
Við geymum persónugögn sem hér segir:
- Bókhalds- og pöntunargögn: 7 ár í samræmi við íslensk lög um bókhald
- Markaðsgögn: þar til samþykki er afturkallað eða eftir 24 mánaða óvirkni
- Greiningargögn: venjulega í allt að 14 mánuði (fer eftir stillingum vettvangs)
- Gögn í þjónustuveri: 3 ár frá síðastu samskiptum
- Skrár um vefköku-samþykki: 3 ár frá degi samþykkis
Þegar gögn eru ekki lengur nauðsynleg er þeim eytt á öruggan hátt eða þau gerð nafnlaus.
11. Réttindi þín samkvæmt GDPR
Þú hefur rétt til þess að:
- Fá aðgang að persónugögnum þínum
- Óska eftir leiðréttingu á röngum gögnum
- Óska eftir eyðingu (réttur til að gleymast’), þar sem lögum samkvæmt er mögulegt. Athugið: bókhalds- og pöntunargögn sem geymd eru vegna lagalegrar skyldu er ekki hægt að eyða fyrir lok lögbundins geymslutímabils
- Takmarka vinnslu við ákveðnar aðstæður
- Mótmæla vinnslu á grundvelli lögmætra hagsmuna, þ.m.t. beinni markaðssetningu
- Óska eftir gagnaflutningi á skipulögðu, tölvulesanlegu sniði
- Afturkalla samþykki hvenær sem er, án þess að hafa áhrif á fyrri lögmæta vinnslu
- Vera ekki háð/ur sjálfvirkri ákvarðanatöku sem hefur lagalegar eða annars konar verulegar afleiðingar
Við framkvæmum ekki sjálfvirka ákvarðanatöku sem hefur lagalegar eða svipaðar verulegar afleiðingar. Til þess að nýta þér réttindi þín, hafðu samband: support@springandrepublic.com
Við svörum beiðnum innan mánaðar eins og krafist er samkvæmt 12. gr. GDPR. Við gætum beðið um staðfestingu á því hver þú ert áður en við svörum, komi það ekki fram.
Þú hefur einnig rétt til þess að leggja fram kvörtun hjá (Persónuvernd): www.personuvernd.is
12. Öryggi gagna
Við innleiðum viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að vernda persónugögn, þ.m.t.:
- Dulkóðaðar tengingar (SSL/TLS) á öllum síðum
- Örugg þriðja aðila greiðsluþjónusta (við geymum ekki kortanúmer)
- Takmarkaður innri aðgangur að persónuupplýsingum, notað aðeins eftir þörfum
- Reglulegt endurmat á öryggisviðmiðum þriðja aðila gagnavinnsluveitenda
Engin sending gerð í gegn um internetið er fullkomlega örugg. Þó við gerum allt sem í okkar valdi er til að vernda gögnin þín, getum við ekki ábyrgst algert öryggi. Ef brot á sér stað munum við tilkynna það til Persónuverndar innan 72 klukkustunda (33. gr. GDPR) og viðkomandi einstaklingum án óheyrilegrar tafar þar sem um mikla áhættu er að ræða (34. gr. GDPR). Öll brot eru skráð innbyrðis. Ef þú telur að gögn þín hafi verið í hættu, hafðu strax samband við okkur í tölvupósti: support@springandrepublic.com.
13. Breytingar á þessari stefnu
Við gætum uppfært þessa persónuverndarstefnu reglulega. Nýjasta útgáfan verður alltaf tiltæk á vefsíðu okkar með uppfærðum degi.
Vefkökustefna
1. Hvað eru vefkökur?
Vefkökur eru litlar textaskrár sem eru settar á tækið þitt þegar þú heimsækir vefsíðu okkar. Þær hjálpa vefsíðunni að virka rétt, bæta frammistöðu og gera okkur kleift að skilja hvernig gestir hafa samskipti við síðuna okkar.
Vefkökur geta verið settar upp af okkur (fyrstu aðila vefkökur) eða af þriðja aðila þjónustuaðilum.
2. Vefkökur sem við notum
A. Stranglega nauðsynlegar vefkökur
Þessar vefkökur eru nauðsynlegar til að vefsíðan virki.
Þær virkja:
- Örugga útskráningu
- Virkni innkaupakörfu
- Svikavernd
- Grundvallaröryggi vefsíðu
Þessar vefkökur krefjast ekki samþykkis.
B. Vefkökur til greininga
Þessar vefkökur hjálpa okkur að skilja hvernig gestir nota vefsíðu okkar.
Við gætum notað:
- Google Analytics
- Shopify-greiningartæki
Þessar vefkökur gera okkur kleift að:
- Mæla umferð á vefsíðu
- Greina hegðun notenda
- Bæta frammistöðu vefsíðu
Greiningarvefkökur eru eingöngu virkjaðar með samþykki þínu.
C. Markaðs vefkökur
Þessar vefkökur eru notaðar til að birta viðeigandi auglýsingar og mæla frammistöðu herferða.
Við gætum notað:
- Meta Pixel (Facebook/Instagram)
- Google Ads
Þessar vefkökur geta rakið:
- Skoðaðar síður
- Hvaða vörur er smellt á
- Framkvæmd kaup
- Samskipti við auglýsingar
Markaðsvefkökur eru eingöngu virkjaðar með samþykki þínu.
3. Hvernig við notum vefkökur
Við notum vefkökur til þess að:
- Tryggja virkni vefsíðu
- Bæta upplifun notenda
- Greina frammistöðu
- Mæla skilvirkni auglýsinga
- Veita viðeigandi markaðssamskipti
Við seljum ekki vefköku-gögn.
4. Stjórnun samþykkis
Þegar þú heimsækir vefsíðu okkar birtist þér vefköku-borði sem gerir þér kleift að:
- Samþykkja allar vefkökur
- Hafna ónauðsynlegum vefkökum
- Velja vefköku-flokka
Markaðs- og greiningarvefkökur eru ekki virkjaðar nema þú gefir samþykki þitt.
Vefköku-borði okkar veitir “Samþykkja allt” og “Hafna ónauðsynlegum vefkökum” valkosti á fyrsta lagi með jöfnum sýnileika. Við notum ekki fyrirfram merkta reiti og aðgangur að vefsíðunni er ekki lokaður ef þú hafnar ónauðsynlegum vefkökum.
Þú getur neitað eða afturkallað samþykki hvenær sem er án þess að það hafi áhrif á möguleika þína til að nota vefsíðuna.
Þú getur afturkallað eða breytt samþykki þínu hvenær sem er í gegnum vefköku-stillingartækið sem er tiltækt á vefsíðu okkar.
Ónauðsynlegar vefkökur og rakningarforrit eru tæknilega blokkuð þar til samþykki er skráð í gegnum samþykkis-stjórnunarvettvang okkar.
5. Þriðja aðila þjónusta
Sumar vefkökur eru settar upp af þriðja aðila þjónustuveitendum, þ.m.t.:
- Shopify Inc.
- Meta Platforms Ireland Ltd.
Þessir þjónustuaðilar geta unnið gögn utan EES. Þar sem persónugögn eru flutt utan EES treystum við á ákvarðanir um fullnægjandi reglur og/eða Staðlaða Samningsskilmála (SCCs) eða aðrar samþykktar verndarráðstafanir í samræmi við GDPR.
Við stjórnum ekki þriðja aðila vefkökum og mælum með að skoða persónuverndarstefnur þeirra fyrir frekari upplýsingar.
Fyrir frekari upplýsingar um hvernig persónugögn eru unnin, vinsamlegast skoðið Persónuverndarstefnu okkar.
6. Vefköku stjórnun
Þú getur stjórnað vefkökum á nokkra vegu:
- Í gegnum vefköku-samþykkistækið okkar
- Í gegnum stillingarnar í vafranum þínum
- Með því að nota þriðja aðila afþökkunartæki (eins og Google Ads stillingar eða Facebook auglýsingastillingar)
Að slökkva á ákveðnum vefkökum getur haft áhrif á virkni vefsíðu.
7. Upplýsingar um vefkökur
Uppfærður listi yfir vefkökur sem notaðar eru á þessari vefsíðu, þ.m.t. heiti vefköku, þjónustuaðili, tilgangur og gildistími, er aðgengilegur í gegnum vefköku-stillingartólið okkar. Þessi listi getur breyst þegar við uppfærum eiginleika vefsíðunnar eða þjónustu þriðja aðila.
8. Breytingar á þessari stefnu
Við gætum uppfært þessa vefköku-stefnu reglulega. Nýjasta útgáfan verður alltaf tiltæk á vefsíðu okkar með uppfærðum degi.




