Lögbundin lágmarksjör starfsmanna og launakjör sem hægt er að lifa á eru ekki sami hluturinn. Í stórum hluta fataiðnaðarins á heimsvísu, er bilið þar á milli gleitt, og því er hljóðlega tekið sem eðlilegum hlut.
Við samþykkjum ekki að það sé eðlilegt. Þess vegan spyrjum við birgja okkar um launaupplýsingar.
Það skiptir máli hvar föt eru framleidd. Framleiðslan okkar hefur aðsetur í Portúgal, innan reglugerðar ESB um launakjör á vinnumarkaði. Starfsmenn eru verndaðir af þar lendum landslögum, þar sem greitt er orlof, þar sem er yfirvinnuvernd og kjarasamningar eru virtir á öllum stigum iðnaðarins. Fataiðnaðurinn í Portúgal hefur sameiginlega alþjóðlega samninga. Við spyrjum alla birgja okkar hvort starfsmenn þeirra falli undir þá samninga.
Gegnsægi á öllum framleiðslustigum leggur sterkan grunn fyrir framleiðslu okkar. En við reiðum okkur ekki einungis á hann. Við vinnum með verksmiðjum sem við þekkjum, heimsækjum og staðfestum og óskum eftir vottuðum skjölum ef þörf er á. Því jafnvel þó framleiðslan sé á svæðum eins og Portúgal þar sem lítil áhætta er á að vinnulöggjöf og gæði efna sé ábótavant, þá höfum við samt ábyrgt eftirlit með öllum stigum framleiðslunnar.
Fatnaður ætti að vera heiðarlegur. Varðandi hvernig hann er gerður, úr hverju hann er gerður og hversu lengi hann á að endast.